|
Nögl
12/4/2009 8:00 PM at Félagsheimilið Klif Ólafsvík
, Ólafsvík, 355
Cost: 0
Undanfarin ár hefur tíðni sjálfsvígstilrauna aukist til muna hér í okkar bæjarfélagi. Þykir okkur því afar nauðsynlegt að varpa ljósi á einkenni geðraskanna svo og úrræði til þess að takast á við vandann. Fordómar spila stóran þátt í því að tefja fyrir bata og besta vörnin gegn fordómum eru upplýsingar og fræðsla.
Þann 4. des næstkomandi verða haldnir samstöðu- og styrktartónleikar. Tilgangur tónleikannaer margþættur. Þar má telja forvarnir, fræðsla um þunglyndi og aðrar skyldar geðraskanir og aðhvetja fólk almennt til samstöðu.
Fjöldi listamanna mun koma að tónleikunum, þar má nefna:
Matti og draugabanarnir
Ungmennafélagið
Nögl
Endless Dark
Siggi Hösk
Klakabandið
Kirkjukór Ólafsvíkur
Kirkjukór Hellissands o.fl.
-Tekið skal fram að öll vinnan sem verður innt af hendi af listamönnum þessum verður endurgjaldslaus.
Frítt verður inn á tónleikana og söfnunarbaukar fyrir þá sem vilja styrkja Þórð Kárason og fjölskyldu. Fjárhæðin sem safnast verður svo lögð inn á söfnunarreikning sem kirkjan hefur stofnað í sama tilgangi.
Styrkir sem fyrirtæki leggja fram verða notaðir til þess að geta haldið þessa tónleika og í forvarnarstarf á svæðinu. Búið er að tala við Geðhjálp sem er tilbúin að koma, gegn gjaldi, eftir áramót og halda opinn fræðslufyrirlestur í samstarfi við Grunnskóla Snæfellsbæjar.
http://www.facebook.com/home.php/event.php?eid=188599995488&ref=ts
|